Þá fer að líða að næsta viðburði en það er dásamleg draumamynd frá Disney – Því draumar geta ræst!

Myndin segir frá risanum BFG sem fer með hina 10 ára gömlu Sophie til Risalands, þar sem hann sýnir henni Draumalandið.

Staðinn þar sem hann safnar saman töfradraumum sem rata svo inn í huga krakka á meðan þeir sofa.

En þegar aðrir risar, ekki eins vinsamlegir, frétta af komu Sophie, þá verða þeir allt annað en ánægðir.

Sophie og nýi besti vinur hennar þurfa nú að finna drottninguna til að fá hjálp við að koma aftur á friði í Risalandi, og í heiminum öllum…. og ekki veitir af!

Kær kveðja Ásdís og Karen