Hinn eini sanni Rokkkór Íslands ætlar að fagna síðasta vetrardegi, þann 19. apríl næstkomandi, með pompi og prakt í Lindakirkju. Tónleikarnir sem bera yfirskriftina HVÍNANDI hefjast klukkan 20:00 en þar verða flutt þekktustu lög hljómsveitarinnar QUEEN. Magnaður kraftur og hvínandi rokk mun því ráða ríkjum þetta kvöld þegar við kveðjum veturinn saman og tökum fagnandi á móti sumri og hækkandi sól. Kórinn mun flytja magnaðar útsetningar á lögunum eftir rokkstjórann sjálfan Matthías V. Baldursson en einnig munu nokkrir einsöngvarar úr kórnum stíga á stokk og þenja raddböndin. Framundan er því mögnuð kvöldskemmtun fyrir alla þá sem una góðri rokktónlist og flottum söng. Rokkkór Íslands hefur notið mikilla vinsælda síðastliðin ár og meðal annars komið fram með hinni heimsfrægu hljómsveit Foreigner. Hér er um að ræða skemmtilegan, orkumikinn og einstakan kór sem þorir að fara óhefðbundnar leiðir þegar kemur að kórsöng og útsetningum.

Hljómsveit Rokkkórsins skipa þeir Pálmi Sigurhjartarson á píanó, Sigurgeir Sigmundsson á gítar, Dúni Geirsson á bassa og Þorvaldur Kári Ingveldarson á trommur. Hljóðmaður er Hrannar Kristjánsson og stjórnandinn er sem fyrr segir Matthías V. Baldursson en hann er einnig stofnandi kórsins.