Máttugir miðvikudagar eru hugljúfar og blessunarríkar stundir þar sem sungin er lofgjörð og flutt hugvekja eða vitnisburður, en í lok stundanna er boðið upp á fyrirbæn. Einstakur hópur sjálfboðaliða hefur annast þetta dýrmæta starf á undanförnum árum í samvinnu við presta Lindakirkju. Steinar Kristinsson, trompetleikara mun leiða tónlistarhópinn í vetur. Haraldur Guðjónsson Thors leiðir stundina 29. sept. kl. 20.