Þá líður senn að því að fermingarfræðsluveturinn hefjist.

En fermingarfræðslan byrjar með námskeiði þriðjudaginn 17. ágúst og stendur fram á föstudag 20. ágúst. Þá daga mæta Linda- og Salaskóli fyrir hádegi (9-12) og Hörðuvalla- og Vatnsendaskóli eftir hádegi (13-16). Ef tímasetning hentar ekki einhverjum, hvort sem það er fyrir eða eftir hádegi, má skipta og koma með hinum hópnum.

Skráning í fermingarfræðsluna fer fram hér á heimasíðu kirkjunnar fyrir þá sem það eiga eftir:

https://skraning.lindakirkja.is/Event.aspx?id=13