Í messunni í  kvöld (11. júlí) kl. 20 syngur Axel O og leikur ásamt hljómsveit þekkta ameríska sálma og trúarlega country slagara. Hljómsveitina skipa Jóhann Ásmundsson, Sigfús Óttarsson, Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari og Óskar Einarsson píanóleikari, sem er jafnframt tónlistarstjóri. Prestarnir Dís Gylfadóttir og Guðmundur Karl Brynjarsson þjóna.