Nú er komið að fermingum í Lindakirkju og verða tvær fermingarathafnir á laugardaginn og ein fermingarathöfn á sunnudaginn.

En að öðru leyti verður helgin með venjubundnu sniði. Sunnudagaskóli verður kl. 11:00, að þessu sinni verður sunnudagaskólinn
ekki í safnaðarsalnum eins og venjulega heldur í kirkjuskipinu. Sr. Dís Gylfadóttir leiðir stundina ásamt sunnudagaskólakennurum.
Guðsþjónusta kl. 20:00. Kór Lindakirkju leiðir lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar.