Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í fullu fjöri kl. 11:00. Börn eru undanþegin tveggja metra reglunni en þar sem við fullorðna fólkið erum það ekki biðjum við um að hverju barni fylgi að hámarki einn fullorðinn og best ef hægt væri að það væru fleiri en eitt barn í fylgd með hverjum fullorðnum.  Um kvöldið kl. 20:00 verður svokallað Lofgjörðar-, bæna- og sálmaflæði. Allir hjartanlega velkomnir. Þar sem líklegt er að fleiri mæti en fjöldatakmarkanir leyfa verður stundin með þeim hætti að mikið verður sungið og leiða félagar úr Kór Lindakirkju almennan söng við píanóleik Óskars Einarssonar. Ef fleiri mæta en komast í fyrra hollið mun stundin taka um 25-30 mínútur. Þá verður flutt blessun og seinni hópnum boðið til kirkju þegar hinn hefur kvatt. Sjáumst í Lindakirkju 17. maí.