Barnakór Lindakirkju kemur í heimsókn í sunnudagaskólann kl. 11 og mun syngja þrjú lög og svo munum við að sjálfsögðu syngja sunnudagaskólasöngvana okkar, heyra biblíusögu og margt margt fleira.

Kl. 20 er guðsþjónusta og eru fermingarbörn og fjölskyldur þeirra sérstaklega boðin velkomin. Kór Lindakirkju leiðir lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar en auk þess fáum við tónlistaratriði frá fermingarbörnum. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar.

Velkomin í Lindakirkju á sunnudaginn.