Skemmtilegt og uppbyggilegt sex vikna námskeið, á þriðjudögum frá 13:00-13:50, þar sem mikið er hlegið en jafnframt slakað á. Ýmis fræðsla er veitt um áhrif hláturs á líkamlega og andlega heilsu. Þau eru meiri en mörgum er kunnugt.

Námskeiðið leiðir Þórdís Sigurðardóttir markþjálfi og hláturþjálfi en henni til aðstoðar er sr. Dís Gylfadóttir.

Næsta hláturnámskeið hefst þriðjudaginn 17. september 2019 og kostar 10.000 kr. Skráning á https://www.lindakirkja.is/safnadarstarf/hlaturslokun/