Fyrsta lofgjörðar- og fyrirbænastund vetrarins verður miðvikudaginn 4. sept. kl. 20 í safnaðarsal Lindakirkju. Þetta eru hugljúfar og notalegar stundir þar sem sungin eru lofgjörðarlög, flutt hugvekja og/eða vitnisburður og einnig er boðið upp á fyrirbæn. Í lok stundarinnar gefst tækifæri til að staldra við, fá sér kaffisopa og spjalla.

Allir hjartanlega velkomnir.