Þriðjudagskvöldið 26. febrúar kl. 20 er að venju lofgjörðar- og fyrirbænastund í Lindakirkju. Ávextir andans leiða lofgjörð og sr. Dís Gylfadóttir flytur hugvekju. Boðið er upp á fyrirbæn í lok stundarinnar og kaffi og samfélag á eftir.

Allir hjartanlega velkomnir.