Hollendingurinn Téo van der Weele er mörgum Íslendingum kunnur sem andlegur leiðbeinandi og sálgætir eftir áratuga þjónustu. Sem ungur prestur starfaði hann á meðal flóttafólks í Tælandi þar sem þúsundir þörfnuðust áfallahjálpar. Þá hóf hann að þróa aðferð sína sem miðar að því að almennir sjálfboðaliðar geti lært að miðla græðandi mætti Guðs inn í líf annarra. Téo leggur áherslu á að miðla friði og blessun Guðs í gegnum fyrirbæn. Friður í skilningi Téo er áhrifaafl sem vekur kyrrð og öryggi í lífi fólks og gefur þeim sem orðið hafa fyrir áföllum færi á að endurheimta sjálf sig. Theo heimsækir Lindakirkju og talar á næstu lofgjörðarstund, 12. feb. kl. 20. Í lok stundarinnar mun hann taka þátt í fyrirbænastundinni og veita fólki blessun. Daginn eftir gefast nokkur tækifæri til að fá sálgæsluviðtal hjá Theo í Lindakirkju. Tímasetningar á því munu koma fram næsta þriðjudagskvöld.