Hvers vegna köstum við ekki þessu grimmilega Gamla testamenti og höldum við okkur bara við kærleiksboðskap Krists? Þannig spyrja margir, en þegar nánar er að gáð þá er málið ekki svona einfalt. Í Gamla testamentinu er mikið um  kærleiks- og náðarríkan boðskap sem á sínum tíma var byltingarkenndur.

Frá og með miðvikudagskvöldinu 16. janúar hefjast biblíulestrakvöld í Lindakirkju í umsjón Guðmundar Karls Brynjarssonar, sóknarprests. Um verður að ræða fjórtán lestra og verður Fyrsta Mósebók lesin frá og með fyrirheiti Abrahams. Allir eru velkomnir, frjáls mæting og aldrei of seint að bætast í hópinn.

Munið miðvikudagskvöld kl. 20-21

ABRAHAM
16.1. – Fyrirheit og ferðalag– 1. Mós. 12 og 13 LOKIÐ
23.1. – Hver í ósköpunum var þessi Melkísedek?– 1. Mós. 14 LOKIÐ
30. 1. – Þrevetra kvíga í pörtum – 1. Mósebók 15 LOKIÐ
6. 2. – Umskurnin, maður minn!– 1. Mósebók 17 LOKIÐ
13.2 – Borða englar skyr? – 1. Mós. 16, 18 og 21 LOKIÐ
20. 2. – Niður Lot –  1. Mósebók 18 og 19 LOKIÐ

ÍSAK
27. 2. – Ísak bundinn. 1. Mósebók 22  Hlaupið verður hratt yfir sögu Ísaks en sérstök áhersla lögð á það þegar Guð segir Abraham að fórna syni sínum. (Um Ísak má lesa í 1. Mós. 17, 21, 22, 24, 25, 26, 27, 28, 31 og 35). LOKIÐ

JAKOB
6. 3. – Sagan af baunakássunni dýru – 1. Mós. 25, 27, 32 og 33 LOKIÐ
13. 3. – Himnastiginn og glíman – 1. Mós. 28.10-19 og 32. 22-32

JÓSEF
20. 3. – Uppáhaldssonurinn öfundaði – 1. Mós. 37-39 og 40.37-57
27. 3. – Draumar Jósefs – 1. Mós. 37. 5-11, kafli 40 og 41.1-37 (Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir kemur í heimsókn og ræðir um drauma í Biblíunni).
3. 4. – Þér ætluðuð að gera mér illt, EN! – 1. Mós. 42-50
10. 4. – Babelsturninn 1. Mós 11.1-8
14. 4. – Tré – 1. Mós. 2 og Opinberunarbókin 22