Vinavoðir hittast alla mánudaga í Lindakirkju milli kl. 11:00-13:00. 

Vinavoðir byggja á hugsjón Prayer Shawl Ministries í Bandaríkjunum þar sem fjöldi handavinnuhópa hefur verið stofnaður til að prjóna og hekla sérstök bænasjöl.

Bænasjölin hafa verið gefin áfram sem vinarvottur og hlýjar blessunaróskir til sjúklinga og annarra sem eru staddir á krossgötum í lífi sínu. Hugsjónin hefur breiðst út víða um heim og orðið mörgum til blessunar, bæði þeim sem gefa og þiggja. Mörg dæmi eru til um þakklátt fólk sem hefur þegið sjal og síðar sjálft prjónað sjöl fyrir aðra sem þurfa þeirra. Þannig berst blessunin áfram lykkju fyrir lykkju, mann fram af manni.

Sr. Dís Gylfadóttir hefur umsjón með hópnum. Það eru allir velkomnir, karlar jafnt sem konur.
Kaffi og samfélag eftir á.