Hollendingurinn Téo van der Weele er mörgum Íslendingum kunnur sem andlegur leiðbeinandi og sálgætir eftir margar komur hingað til lands á liðnum áratugum. Sem ungur kristniboði starfaði hann á meðal flóttafólks í Tælandi þar sem þúsundir þörfnuðust áfallahjálpar. Þá hóf hann að þróa aðferð sína sem miðar að því að almennir sjálfboðaliðar geti lært að miðla græðandi mætti Guðs í líf annarra.

Téo leggur áherslu á að miðla blessun Guðs og friði og byggja fólk upp og örva til að verða þeim, sem orðið hafa fyrir áföllum, til stuðnings.

Að þessu sinni starfar Téo í Hjallakirkju föstudag og laugardag, 2. og 3. febrúar.

Námskeiðið, Að fylla tómið í lífi sínu, verður í Lindakirkju sunnudaginn 4. febrúar frá kl. 09.00 til 17.00. Síðari hluta tímans væntanlega hópviðtöl.

Verð fyrir námskeiðið er kr. 5.000, en kr. 7.000 fyrir þann takmarkaða fjölda sem fær einkaviðtal (á mánudag). Afsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja og þeir sem eiga erfitt með að sækja námskeiðið af fjárhagsástæðum hafi samband.

Nánari upplýsingar og skráning:

Rósa Ólöf Ólafíudóttir, netfang: rosa.olof@simnet.is, s. 893 5744.

Vigfús Ingvar Ingvarsson, netfang: vigfus50@gmail.com, s. 863 6866.

Téo predikar í Lindakirkju í guðsþjónustunni 4. febrúar kl. 20.