Hvernig stuðla ég að heilbrigðu hjónabandi sem endist út lífið.

Hjónanámskeiðið er byggt á bókinni  Hvernig stuðla má að heilbrigðu og ævilöngu hjónabandi, eftir Nicky and Sila Lee en þau hafa verið farsællega gift í 30 ár. Hjónanámskeiðið er fyrir hjón sem vilja  byggja upp sterkt hjónaband sem endist.

Efni kvöldanna eru:
  *   Að byggja upp sterkt samband
  *   Listin að eiga samskipti
  *   Að leysa ágreiningsmál
  *   Máttur fyrirgefningarinnar
  *   Árekstrar í fjölskyldunni það liðna og það sem stendur yfir núna
  *   Gott kynlíf
  *   Ástin í verki

Kennt er á þriðjudögum. Hægt er skrá sig á næsta námskeið á lindakirkja@lindakirkja.is

Efnið er spilað af diskum þar sem höfundar bókarinnar (Nicky and Sila Lee) kenna sjálf en efnið er textað.

Eftir matinn er fræðsla og síðan vinna pörin hver fyrir sig verkefni út frá kennslunni. Engin hópvinna fer fram á námskeiðinu, heldur vinnur hvert par fyrir sig í næði og engin krafa er um að menn segi frá sínum málum eða deili með öðrum.

Þrátt fyrir að námskeiðið sé byggt á kristnum gildum er það mjög gagnlegt öllum pörum óháð trúarskoðunum eða kirkjudeildum.

Maturinn kostar 1500 kr á mann hvert kvöld
Kennslubók 2000 kr

Margir hafa sótt þessi námskeið og gefa þeim góð meðmæli.
,,Við hjónin sóttum námskeiðið fyrir nokkrum árum. Það var svo notalegt að eiga svona góða kvöldstund saman. Borða góðan mat og ræða saman um sambandið okkar. Þetta var okkur til blessunar dró okkur nær hvort öðru. Það var enginn að skipta sér af því hvað við ræddum  um.“

Hægt er að kynna sér námskeiðið betur á heimasíðunni   https://www.htb.org/whats-on/courses/marriage-course-2
Umsjón með námskeiðinu hafa hjónin:
Dagný Pétursdóttir  og Gísli Pálsson
Andrés Júlíus Ólafsson og Guðrún Sigurðardóttir