Vinavoðir byggja á hugsjón Prayer Shawl Ministries í Bandaríkjunum þar sem fjöldi handavinnuhópa hefur verið stofnaður til að prjóna og hekla sérstök bænasjöl.

Félagsskapurinn Vinavoðir í Lindakirkju hóf göngu sína síðastliðið vor.

Bænasjölin hafa svo verið gefin áfram sem vinarvottur og hlýjar blessunaróskir til sjúklinga og annarra sem eru staddir á krossgötum í lífi sínu. 
Hugsjónin hefur breiðst út víða um heim og orðið mörgum til blessunar, bæði þeim sem gefa og þiggja.

 
Vinavoðir hittast í Lindakirkju á mánudögum kl. 11:00-12:00

Fundirnir hefjast með stuttri bæn og svo er hafist handa við að hekla eða prjóna.  Mörg dæmi eru til um þakklátt fólk sem hefur þegið sjal og síðar sjálft prjónað sjöl fyrir aðra sem þurfa þeirra með. Þannig berst blessunin áfram lykkju fyrir lykkju, mann fram af manni.