Sunnudagaskóli kl. 11:00

í Lindakirkju annars vegar og Boðaþingi hins vegar. Biblíusögur,barnasálmar,brúður og gott samfélag.

Guðsþjónusta kl. 20.00 í kirkjuskipi Lindakirkju (stóra salnum).

Í tilefni af línuhraðalssöfnun Þjóðkirkjunar verður messan með breyttu sniði. Við bætum í tónlistina og verður hún í aðalhlutverki þennan sunnudaginn. 

Að sjálfsögðu er aðgangur ókeypis eins og alla aðra sunnudaga. Eftir messuna býður kórinn upp veglegt kaffi og kökuhlaðborð. 

Tekið verður á móti frjálsum framlögum og munu þau renna óskert til söfnunar fyrir Línuhraðli fyrir Landspítala háskólasjúkrahús.

Ekki láta kvöldið fram hjá þér fara. Gospel, gleði gott málefni og samfélag!!