Hvítasunnudagur: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir.

Annar í hvítasunnu: DÝRÐIN ER ÞÍN. Stórtónleikar. Kór Lindakirkju ásamt hljómsveit. Sérstakur gestur tónleikanna er Bubbi Morthens sem mun flytja perlur úr lagasafni sínu bæði einn með gítarinn og með kórnum. Kór Lindakirkju mun einnig flytja gospeltónlist úr öllum áttum eftir frábæra höfunda eins og Andrea Crouch og Kirk Franklin. Frumflutt verður ný íslensk gospeltónlist. Tónlistarstjóri er Óskar Einarsson en auk hans skipa hljómsveitina þeir Friðrik Karlsson, Jóhann Ásmundsson, og Brynjólfur Snorrason. Tvennir tónleikar eru í boði kl. 17:00 og kl. 20:00, miðasala er í Lindakirkju og í gegnum netfangið lindakirkja@lindakirkja.is. Hlökkum til að sjá þig!! .