Fimmtudagskvöldið 14. febrúar verður sameiginlegt fræðslukvöld fyrir foreldra fermingarbarna í Kópavogi.  Sr. Sigfús Kristjánsson prestur í Hjallakirkju flytur fyrirlestur um áföll og sorgarviðbrögð.  Þetta kvöld er sameiginlegt með öllum fjórum kirkjum kópavogs og er þetta í annað sinn sem slíkt fræðslukvöld er haldið.  Staðsetning er Borgir safnaðarheimili Kópavogskirkju og hefst erindið kl. 20.  Eftir verður boðið upp á umræður en stefnt er að því að erindi og umræðum verði lokið kl. 21:30.