Hvernig stuðla ég að heilbrigðu  hjónabandi sem endist út lífið.
Námskeiðið kemur frá Holy Trinity Brompton kirkjunni í London en þar byrja Alfa námskeiðin einnig sem hafa farið mjög víða um heiminn. Hjónanámskeiðið er byggt á bókinni  Hvernig stuðla má að heilbrigðu og ævilöngu hjónabandi, eftir Nicky and Sila Lee en þau hafa verið farsællega gift í 30 ár. Hjónanámskeiðið er fyrir hjón sem vilja  byggja upp sterkt hjónaband sem endist.

Efni kvöldanna eru:
  *   Að byggja upp sterka stofnun (hjónaband)
  *   Listin að eiga samskipti
  *   Að leysa ágreiningsmál
  *   Máttur fyrirgefningarinnar
  *   Árekstrar í fjölskyldunni það liðna og það sem stendur yfir núna
  *   Gott kynlíf
  *   Ástin í verki

Kennt er á þriðjudögum. Hægt er skrá sig á næsta námskeið á lindakirkja@lindakirkja.is. Haft verður samband þegar nýtt námskeið fer af stað.
Efnið er spilað af diskum þar sem höfundar bókarinnar (Nicky and Sila Lee) kenna sjálf en efnið er textað.

Eftir matinn er fræðsla og síðan vinna pörin hver fyrir sig verkefni út frá kennslunni. Engin hópvinna fer fram á námskeiðinu og engin krafa er um að menn segi frá sínum málum eða deili með öðrum. Hér eru hjónin hver fyrir sig að vinna í sínu sambandi.

Þrátt fyrir að námskeiðið sé byggt á kristnum gildum er það mjög gagnlegt öllum pörum óháð trúarskoðunum eða kirkjudeildum.

Maturinn kostar 1500 kr á mann hvert kvöld
Kennslubók 1500  kr

Margir hafa sótt þessi námskeið og gefa þeim góð meðmæli.
,,Við hjónin sóttum námskeiðið fyrir nokkrum árum. Það var svo notalegt að eiga svona góða kvöldstund saman. Borða góðan mat og ræða saman um sambandið okkar. Þetta blessaði okkar og dró okkur nær hvort öðru. Það var enginn að skipta sér af því hvað við ræddum  um.“

Hægt er að kynna sér námskeiðið betur á heimasíðunni   http://www.htb.org.uk/about-htb

Þeir sem halda utan um námskeiðið eru hjónin:
Dagný Pétursdótti  og Gísli Pálsson
Valdís Ólöf Jónsdóttir og Sveinn Alfreðsson