Pabbamorgnar eru á laugardögum  frá  kl. 10:00 -12:00. Umsjónarmaður þeirra er Ólafur Kári Júlíusson. Hugmyndin með pabbamorgnunum er að gefa feðrum tækifæri til að koma saman með börnin sín og gera eitthvað uppbyggilegt með þeim eða  spjalla  um daginn og veginn við aðra pabba meðan börnin leika sér.

 

Heitt er á könnunni og boðið uppá brauðmeti og ávaxtasafa fyrir 150 krónur.

 

 

Dagskrá pabbamorgna fram á vor

 

3. mars Kókoskúlugerð

 

10. mars  Sund í Salalaug hittumst kl. 10.00 í andyri laugarinnar.

 

17. mars Flatbökugerð

 

24. mars Húsdýragarðurinn

 

31. mars -pabbamorgun fellur niður vegna ferminga

 

7. apríl -páskafrí

 

14. apríl – Leikja og spiladagur

 

21. apríl – Góðgerðadagur -tökum með okkur dót til að nota á pabbamorgnum og föt og annað slíkt sem við notum ekki lengur og gefum í gott málefni.

 

28. apríl  -pylsur á grillinu!

 

5. maí –  Ratleikur úti

 

12 .maí -við lærum að gera eftirrétt -daginn fyrir mæðradaginn

 

19. maí -Heiðmerkurferð -grill og gleði