Hetjan ÉG! spennandi námskeið hefjast 24. febrúar!

Hetjan ÉG! spennandi námskeið hefjast 24. febrúar!

Hetjan ÉG!  Námskeið fyrir 5. og 6. bekk í Digranes-og Hjallakirkju og Lindakirkju

Hetjan ÉG! eru ný og vönduð námskeið fyrir stráka í 5. og 6. bekk á vegum KFUM og KFUK í Lindakirkju og fyrir stelpur í 5. og 6. bekk á vegum KFUM og KFUK í Digranes-og Hjallakirkju hefjast mánudaginn 24. febrúar nk.

KFUM og KFUK í samstarfi við Lindakirkju og Digranes og-Hjallakirkju fer nú af stað með spennandi námskeið fyrir stráka og stelpur í 5. og 6.bekk.

Markmið námskeiðsins er að miðla markmiðasetningu, félagsfærni og jákvæðri sjálfsmynd. Einnig verður farið yfir mikilvægi þess að taka ábyrgð, hrósa og þora að takast á við áskoranir.
Námskeiðin verða í Lindakirkju og Digranes- og Hjallakirkju á mánudögum frá 16:30-18:00 og samanstendur af 6 samverum auk sólarhringsferðar í Vatnaskóg.

Fyrsta samveran verða mánudaginn 24. febrúar kl. 16:30-18:00 og svo vikulega í 6 vikur en ferðin í Vatnaskóg verður tæpur sólarhringur frá föstudeginum 20. mars til laugardagsins 21.mars.

Hver samvera hefst á því að börnin setjast niður og fá sér hressingu saman áður en farið er í leiki og skapandi verkefni. En markmiðum námskeiðsins verður náð fram með fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum,klípusögum, leiklist og samvinnuverkefnum. Námskeiðið er sett saman af þverfaglegum hópi með mikla reynslu úr barna og æskulýðsstarfi í hópnum eru félagsráðgjafar, fjölskyldufræðingur, prestur, tómsstundafræðingur, íþróttafræðingur og nemi á menntavísindasviði,

Þátttakendur á námskeiðinu geta minnst verið 8 og mest 18.

Skráning á bæði námskeiðin fara fram hérna inná https://sumarfjor.is/Event.aspx?id=16

Frekari upplýsingar veita Unnur Ýr Kristinsdóttir (unnur@kfum.is), sr. Guðni Már Harðarson (gudni@lindakirkja.is) eða sr. Helga Kolbeinsdóttir (helga@digraneskirkja.is)

2020-02-18T16:40:40+00:0018. febrúar 2020 16:37|

Deildu þessu með vinum þínum!

Go to Top