
Þessa dagana taka fermingarbörn um land allt þátt í söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar og ganga í hús með söfnunarbauk í hönd og safna fyrir vatnsverkefnum í Eþíópíu. Áður en börnin fara af stað fræðast þau um verkefnin og um gildi samhjálpar og náungakærleiks.
Fermingarbörn í Lindakirkju hafa tekið þátt í söfnuninni undanfarin ár. Söfnunin fer að þessu sinni fram þriðjudaginn 5. nóvember kl. 17-20. Tökum vel á móti þeim og styðjum gott málefni.
Margrét Unnur Kjartansdóttir
4. nóvember 2019 17:03
