Við byrjum aftur á morgun, fimmtudaginn 12. sept. kl. 12.

Súpusamverur eldri borgara hafa verið ómissandi hluti af tilveru margra í Lindasókn undanfarin ár. Samverurnar eru fjölsóttar og gjarnan mæta gestir með áhugaverða fyrirlestra eða kynningar í bland við að prestarnir bregða á leik.

Stundirnar verða áfram hálfsmánaðarlega á fimmtudögum kl. 12:00-13:40.

Stundirnar næra í senn líkama, sál og anda, en í upphafi er boðið uppá súpu eða staðgóðan hádegisverð, svo er fyrirlestur eða dagskrárefni áður en endað er á Guðs orði, bæn og sálmasöng.

Kostnaður við matinn, eftirrétt og kaffi er 1700 krónur.

Hlökkum til að sjá ykkur.