KFUM og KFUK starf í Lindakirkju fyrir börn 9-12 ára.

Lindakirkja býður uppá vandað barnastarf í samvinnu við KFUM og KFUK. Í starfinu, sem er börnunum að kostnaðarlausu, mikið er lagt uppúr leik, söng og gleði þar sem allir eru virkjaðir með. Bingó, þrautir, hópefli, gestir og spurningakeppnir er meðal dagskrárliða ásamt helgistund og fræðslu um kristna trú. Í lok vorannar endar starfið með ferð í Vatnaskóg yfir eina nótt. Ferðin er valkvæð og greiðist kostnaður við hana af þátttakendum.

KFUK stúlknastarfið verður einu sinni í viku á fimmtudögum frá 15:30 – 16:30.  Leiðtogar í vetur verða Arnar Ragnarsson, Agnes Björk Brynjarsdóttir, Bríet Eva Gísladóttir og Nanna Guðrún Sigurðardóttir

KFUM drengjastarfið verður einu sinni í viku á fimmtudögum frá 14:30 -15:30. Leiðtogar í vetur verða Arnar Ragnarsson og sr. Guðni Már Harðarson 

 

Dagskrá KFUM og KFUK fyrir haustönn!

15. september Partýleikir og veitingar

22. september Hungergames

29. september Blöðrubrennó

6. október Merkilegi fundurinn

13. október BINGÓ -glæsilegir vinningar

20. október Stradegó / Mafía

27. október Popp og bíó

3. nóvember Orrusta

10. nóvember Brjóstsykursgerð

17. nóvember Bandý

24. nóvember Karamelluspurningakeppni

1. desember Litlujól