Dagskrá veturinn 2026-2027

Stundirnar verða áfram hálfsmánaðarlega á fimmtudögum kl. 12:00-13:40.

Samverurnar hafa verið ómissandi hluti af tilveru margra í Lindasókn undanfarin ár. Þær eru fjölsóttar og gjarnan mæta gestir með áhugaverða fyrirlestra eða kynningar í bland við að prestarnir bregða á leik.

Stundirnar næra í senn líkama, sál og anda, en í upphafi er boðið uppá staðgóðan hádegisverð, svo er fyrirlestur eða dagskrárefni áður en endað er á Guðs orði, bæn og sálmasöng þar sem Óskar Einarsson leikur undir.

Kostnaður við matinn, eftirrétt og kaffi er 3000 krónur. Nema annað sé tekið fram.

Vinsamlega smelltu á rauða hnappinn hér á síðunni til þess að skrá þig.

17. september Örn Árnason gerir alla daga betri
1. október Haustferð á Seltjarnarnes
15. október Prestarnir bregða á leik
29. október Hryllilega skemmtilegt hrekkjavökuþema 
12. nóvember Gleðisveitin stendur undir nafni og er bráðsmitandi
26. nóvember Stefán Pálsson sagnfræðingur fjallar um seinna stríðið og Kristín Birna Óðinsdóttir syngur gamlar dægurperlur
10. desember Jólasamvera – jólamatur og sérstakur jólagestur. Athugið breytt verð 6.900
14. janúar Spurningakeppnin – Vert ei spar að spyrja
28. janúar Danshjónin dásamlegu – Regína Ósk og Svenni Þór
11. febrúar
25. febrúar
11. mars
1. apríl
15. apríl
29. apríl
13. maí Óvissuferð, verð kemur síðar