Kinsey Rose í Lindakirkju

Kinsey Rose, countrysöngkona frá Nashville mun syngja í guðsþjónustu í Lindakirkju sunnudagskvöldið 10. maí kl. 20:00.

Kinsey vakti mikla athygli í þáttunum The Voice USA í fyrir nokkrum árum. Hún hefur meðal annars unnið með countrystjörnunni Vince Gill og komið fram víða í Evrópu og í Ástralíu. Kinsey Rose syngur á nýrri plötu íslenska countrysöngvarans Axels Ó. Hún verður með tónleika ásamt honum, sem er löngu uppselt á laugardaginn 9. maí í Grindavík.

Í sömu guðsþjónustu verða fermingarbörn vorsins 2027 boðin sérstaklega velkomin ásamt forráðamönnum sínum og munu allir prestar Lindakirkju þjóna. Eftir messu verður fundur þar sem fermingafræðslan verur kynnt og í kjölfar fundarins hefst svo skráning fermingarbarna á heimasíðu Lindakirkju eða kl. 21:30 sama dag.

Auk Kinsey mun Kór Lindakirkju syngja undir stjórn Óskars Einarssonar við þetta tilefni .

Margrét Unnur Kjartansdóttir

7. maí 2026 09:18