Þann 18. mars síðastliðinn varð sr. Guðmundur Karl sextugur. Af því tilefni býður hann öllum sem koma vilja á tónleika í Lindakirkju laugardaginn 18. apríl kl. 17:00.
Eingöngu verða flutt lög og/eða textar eftir hann með örlitlum undantekningum. Óskar Einarsson er tónlistarstjóri og hefur hann fengið til liðs við sig frábæra hljómsveit.
Fjöldi gestasöngvara mun stíga á stokk. Má þar nefna Áslaugu Helgu, Dr. Gunna, Maríu Ólafsdóttur að ógleymdum VÆB bræðrum sem verða með óvænt atriði.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis en þeir sem eru tilbúnir að láta eitthvað af hendi rakna til Lindakirkju geta gert það með nokkrum smellum á símann sinn gegn um QR kóða á staðnum.
Þetta verða fjölbreyttir og skemmtilegir tónleikar og henta fólki á öllum aldri.

Sjáumst vonandi sem flest.
Margrét Unnur Kjartansdóttir
13. apríl 2026 11:03