Næsta miðvikudag, 8.apríl, verða vortónleikar Barna- og Unglingagospelkórs Lindakirkju kl.18:00.
Kórunum tekst vonandi að syngja burtu veturinn með glaðværum kórsöng, skemmtilegum kynningum og fjölda einsöngvara.
Stjórnendur er Áslaug Helga Hálfdánardóttir og Hjördís Anna Matthíasdóttir, Óskar Einarsson leikur undir með kórunum,
Sr. Guðni Már heldur utan um dagskrána
Öll velkomin og ókeypis aðgangur

Margrét Unnur Kjartansdóttir

6. apríl 2026 14:02