Í Lindakirkju er undirbúningur dymbilviku og páska í fullum gangi. Sr. Guðmundur Karl bakaði í morgun tilraunaútgáfu af altarisbrauði fyrir skírdagskvöld og hefst sú stund kl. 20.
Fyrir framan Guðmund er flaska af vínberjasafanum sem verður notaður við útdeilinguna en það er úrvals vínberjasafi frá Toscanahéraðinu á Ítalíu.

Dagskrá skírdags hefst kl. 19 á dagskrárlið sem ekki hefur verið áður, sem er pizzuborðhald í kapellu Lindakirkju. Þar verður meðal annars boðið upp á sérstaka skírdagspizzu,
sem er pönnupizza með kjúklingi, lauk, hvítlauk, rjómaosti og bananapipar en auðvitað verða hefðbundnari pizzur einnig á boðstólnum fyrir aðeins 1000kr. Skráning hér

Á föstudaginn langa er helgistund í kirkjunni kl. 20. Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson annast tónlistina, sr. Hjalti Jón Sverrisson fangaprestur flytur hugvekju og
þau Guðbrandur Kristinn Jónasson og Ástaa Huld Henrysdóttir lesa píslarsöguna í Jóhannesarguðspjalli. Sr. Guðmundur Karl leiðir stundina.

Páskadagur hefst með hátíðarguðsþjónustu kl. 9 að morgni. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar.
Að lokinni guðsþjónustu er boðið til morgunverðar og er öllum frjálst að leggja eitthvað til á morgunverðarborðið.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað á páskadag með hefðbundinni páskaeggjaleit fyrir börnin

Margrét Unnur Kjartansdóttir
1. apríl 2026 14:23