
Karlakaffi miðvikudaginn 1. apríl kl. 10:00 -11.00. Fram að kosningum til sveitarstjórnar í Kópavogi ætlar Lindakirkja að vera með þrjú skipti af karlakaffi, þar sem framboðin sjö, sem bjóða sig fram í Kópavogi, koma og kynna áherslur sínar. Fulltrúar Viðreisnar og Sósíalistaflokksins ríða á vaðið. En þær María Ellen Steingrímsdóttir lögfræðingur og oddviti Viðreisnar í Kópavogi og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skólastjóri Hörðavallaskóla sem skipar 4. sætið mæta fyrir hönd Viðreisnar. Marzuk Ingi Lamsiah Svanlaugar tölvunarfræðingur sem skipar 3. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Kópavogi mætir fyrir hönd þeirra. Flokkarnir fá 15 mínútna framsöguerindi hvor og svo er opið fyrir spurningar um hvernig við gerum bæinn okkar betri. Verið velkomnir á karlakaffi!
Margrét Unnur Kjartansdóttir
31. mars 2026 19:47
