Sunnudagaskóli kl. 11:00.
Sumarleg og skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.
Söngur, sögur og góðir gestir kíkja í heimsókn.
Sunnudagaskólakennarar leiða stundina.
Guðsþjónusta kl. 20:00.
Textar sunnudagsins fjalla um köllun í kærleika og hugrekki frá Guði.
Kórkonurnar Rósalind Sigurðardóttir og Sigrún Jóna Grettisdóttir
leiða lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar.
Danni prestur þjónar fyrir altari.
Öll hjartanlega velkomin.