Skráning í fermingar 2027

Skráning hefst 10. maí, kl 21:30

Fermingarfræðsla 2026-2027

Upphaf fermingarfræðslu og fræðsludagar

Fermingarstarfið hefst með skemmtilegum fræðsludögum vikuna áður en skólar hefjast, þriðjudag til föstudag 18. – 21. ágúst 2026.

Þá daga mæta:

  • Linda- og Salaskóli fyrir hádegi (9-12)
  • Kóra- og Vatnsendaskóli eftir hádegi (13-16).

Ef tímasetning hentar ekki einhverjum, hvort sem það er fyrir eða eftir hádegi, má skipta og koma með hinum hópnum.
Best er að börnin séu búin að fá sér morgun/hádegismat en boðið verður upp á ávexti í frímínútum.
Í vetur verður kennt hálfsmánaðarlega og verður tímasetning auglýst síðar eftir að stundarskrár skólanna liggja fyrir.

Fyrirspurnir má senda beint á kirkjuna: lindakirkja@lindakirkja.is.

Messa sunnudaginn 23. ágúst 2026

Sunnudaginn 23. ágúst kl. 20:00 bjóðum við fermingarbörn og fjölskyldur þeirra sérstaklega velkomin í skemmtilega messu sem markar upphaf vetrarins. Fimm af messum vetrarins verða sérstaklega ætlaðar fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra; 11. okt., 18. okt., 17. jan. og 14. feb. En við hvetjum alla til að koma í messur sem eru öll sunnudagskvöld kl. 20:00. Ekki er skyldumætingu í messur og ekki þarf að merkja við mætingu.

Fermingarfræðslutímar 2026-2027

Hver skóli mætir aðra hvora viku. Ef börnin eiga ekki heimangengt á þeim tímum sem þeirra skóli mætir er þeim frjálst að mæta í fræðslu með öðrum skólum.

Fræðslan hefst þessa daga og verður svo aðra hvora viku:

Þriðjudagur 8. september 2026

  • Kóraskóli kl. 14.00-14.40
  • Lindaskóli kl. 14.50-15.30

Þriðjudagur 15. september 2026

  • Salaskóli kl. 14.30-15:10
  • Vatnsendaskóli kl. 15:10-15:50

Tenglar

Ferð í Vatnaskóg

Einn af hápunktum vetrarins er fermingarnámskeið í Vatnaskógi. Mörgum hefur þótt það meiriháttar upplifun, enda hefur staðurinn upp á svo ótalmargt að bjóða.

Skipulag fermingarfræðslunnar

Veldu skóla hér fyrir neðan til þess að sjá dagskrá vetrarins.

Skráning í fermingar og fermingarfræðslu

Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til þess að skrá í fermingarfræðslu. Við skráningu er greitt skráningargjald og einnig valin fermingardagur. Athugið að námsgögn eru innifalin í skráningargjaldi.

Fermingardagar vorið 2027

Kynningarfundur um fermingarfræðsluna í Lindakirkju veturinn 2026-2027 verður haldinn að lokinni messu í Lindakirkju sunnudagskvöldið 10. maí 2026.
Að fundi loknum verður opnað fyrir skráningu í fermingarfræðslu næsta vetrar á heimasíðunni