Alfa námskeið verður haldið í Lindakirkju og hefst með kynningarkvöldi miðvikudaginn 9. september 2026 kl. 18:00-20:00. Boðið verður uppá kvöldverð. Þau sem eru með fæðuóþol eða fæðuofnæmi eru velkomin að koma með mat sem hægt er að hita upp eða fá að geyma í ísskáp. Námskeiðið stendur í níu miðvikudagskvöld frá kl. 18:00 – 20:15, endar miðvikudagskvöldið 4. nóv. (auk helgarferðar í Ölver sumarbúðir frá 23. til 25. okt., verð fyrir ferðina er 14.000 kr.)
Sr. Pétur Ragnhildarson heldur utan um námsskeiðið í vetur ásamt góðum hópi fólks. Alfaliðar þetta árið verða Nína Dóra, Ingibjörg, Gunnar, Indriði, Dagný, Sóley, Þorgerður og Ásdís.
Á Alfa-námskeiðinu sem hefur verið haldið á ári hverju frá stofnun Lindasóknar verður stuðst við myndbönd til kennslu í bland við lifandi fyrirlestra. Alfa styðst við bók Nicky Gumbel; Spurningar lífsins (e. Questions of Life). Umgjörð námskeiðsins er afslöppuð og þægileg og ekki eru lagðar kröfur á þátttakendur um viðhorf, skoðanir eða afstöðu. Upplifun hvers og eins af námskeiðinu er ávallt mjög persónuleg. Hver og einn dregur sinn lærdóm. Margir hafa hlotið blessun af því að sækja Alfa-námskeið oftar en einu sinni enda trúarglíman og spurningar lífsins sístætt verkefni.
Við í Lindakirkju bjóðum þig sérstaklega velkomin á kynningarkvöldið þar sem boðið verður uppá ljúffenga máltíð, kynningar fyrirlestur og spurningar.
Kostnaður við kynningarkvöldið er enginn en fyrir hin kvöldin átta greiða þátttakendur 2.000 krónur fyrir matinn í hvert sinn en verðið fyrir Ölver kemur síðar.
Ef fólk á í vandræðum með að greiða fyrir námskeiðið biðjum við um að senda okkur línu á petur@lindakirkja.is svo hægt sé að koma á móts við það. Enginn á að þurfa hætta við þátttöku í Alfa á fjárhagslegum forsendum.
Athugið að það er líka hægt að skrá sig aðeins á kynningarkvöldið og skrá sig seinna á námskeiðið.
Smelltu á skráningarhnappinn hér til hægri til að skrá þig.

