
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað klukkan 11:00. Sunnudagaskólakennarar leiða stundina.
Að þessu sinni verður búningaþema og hvetum við alla til að mæta í búningum (ekki skylda)
Í tilefni af allra heilagra messu verður kvöldguðsþjónustan kl. 20:00 helguð minningu látinna ástvina
og boðið verður upp á að tendra ljós í þeirra minningu.
Kór Lindakirkju, undir stjórn Óskars Einarssonar, syngur hugljúf lög og sálma sem hæfa tilefninu.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
Guðsþjónustunni verður streymt á Facebook síðu og heimasíðu Lindakirkju.
Margrét Unnur Kjartansdóttir
30. október 2026 13:25
