
Það er með mikilli tilhlökkun og gleði að við tilkynnum að sr. Pétur Ragnhildarson bætist í hóp vígðra þjóna Lindakirkju.
Við fögnum því að fá Pétur til prestsþjónustu og biðjum honum blessunar í lífi og starfi.
Sr. Pétur Ragnhildarson er fæddur árið 1993. Hann ólst upp í Kópavogi og er stúdent af náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri.
Hann lauk embættisprófi í guðfræði árið 2019. Síðan þá hefur hann bætt við sig MA-prófi í guðfræði, diplómanámi í sálgæslu og sótt námskeiði í sáttamiðlun.
Sr. Pétur hefur áralanga reynslu af barna- og unglingastarfi. Hann hefur starfað sem æskulýðsfulltrúi í kirkjum,
yfirmaður í frístundastarfi í grunnskóla og forstöðumaður í sumarbúðum.
Hann hefur einnig haft umsjón með fermingarnámskeiðum í Skálholti.
Þann 1. mars 2020 var Pétur vígður til prestsþjónustu í Fella- og Hólakirkju í Breiðholtsprestakalli og Guðríðarkirkju í Grafarholti,
þar sem hann starfaði sem prestur og æskulýðsfulltrúi.
Sumarið 2022 var hann skipaður prestur í Breiðholtsprestakalli og sumarið 2025 tók hann við sem sóknarprestur.
Eiginkona hans er Alexandra Ýr Auðunsdóttir og eiga þau einn son.
Margrét Unnur Kjartansdóttir
28. ágúst 2026 15:18
