Við viljum minna á að fermingarstarfið hefst með skemmtilegum fræðsludögum vikuna áður en skólar hefjast, þriðjudag til föstudag 18. – 21. ágúst 2026.

Þá daga mæta:

  • Linda- og Salaskóli fyrir hádegi (9-12)
  • Kóra- og Vatnsendaskóli eftir hádegi (13-16)

Ef tímasetning hentar ekki einhverjum, hvort sem það er fyrir eða eftir hádegi, má skipta og koma með hinum hópnum. Í vetur verður síðan kennt hálfsmánaðarlega og verður tímasetning auglýst síðar eftir að stundarskrár skólanna liggja fyrir.

Fyrirspurnir má senda beint á kirkjuna: lindakirkja@lindakirkja.is.

Margrét Unnur Kjartansdóttir

10. ágúst 2026 13:22