Við viljum minna á að fermingarstarfið hefst með skemmtilegum fræðsludögum vikuna áður en skólar hefjast, þriðjudag til föstudag 18. – 21. ágúst 2026.
Þá daga mæta:
Linda- og Salaskóli fyrir hádegi (9-12)

Kóra- og Vatnsendaskóli eftir hádegi (13-16).

Ef tímasetning hentar ekki einhverjum, hvort sem það er fyrir eða eftir hádegi, má skipta og koma með hinum hópnum.
Í vetur verður kennt hálfsmánaðarlega og verður tímasetning auglýst síðar eftir að stundarskrár skólanna liggja fyrir.

Fyrirspurnir má senda beint á kirkjuna: lindakirkja@lindakirkja.is.

Skráning í fermingarfræðslu og fermingarathafnir er á lindakirkja.is

 

Margrét Unnur Kjartansdóttir

3. júní 2026 14:31