Sunnudaginn 26. apríl síðastliðinn var fullt út úr húsi í Lindakirkju þegar sameiginlegur 130 manna gospelkór tók lagið á lokatónleikum eftir þriggja daga gospel söngnámskeið. Námskeiðið var haldið dagana 24. til 26. apríl undir leiðsögn hins reynslumikla söngstjóra og lagahöfundar Roderick Giles að tilstuðlan Óskars Einarssonar. Markmið námskeiðsins var meðal annars að bæta og læra gospelhljóm og æfa samhljóm í kórum og lofgjörðarteymum, fara yfir grunnatriði raddbeitingar og veita nýja innspýtingu í tónlistarstarfið.

Fimm kórar tóku þátt í námskeiðinu og lokatónleikunum: Kór Lindakirkju, Gospelkór Glerárkirkju, Kór Njarðvíkurkirkju, Vox Gospel og Gospelkór Fíladelfíu ásamt öðru söngáhugafólki um gospel. Saman mynduðu þau kraftmikinn 130 manna kór sem flutti bæði einstök atriði hvers kórs fyrir sig og sameiginleg gospelverk sem æfð höfðu verið yfir helgina ásamt hljómsveit hússins.

Á tónleikunum náði Roderick Giles að heilla alla sem í salnum voru. Áður en yfir lauk höfðu nær allir gestir tekið þátt í söngnum á einn eða annan hátt og stemmningin lyfti þakinu af kirkjunni.

„Roderick Giles er einstakur leiðbeinandi sem nær til fólks á sinn sérstaka hátt. Á tónleikunum á sunnudaginn voru gestir ekki bara áhorfendur heldur þátttakendur og þegar kirkjan öll syngur með veit maður að töfrum gospelsins hefur verið náð.“

Óskar Einarsson, tónlistarstjóri Lindakirkju

Fjölbreytt tónlistarstarf í kirkjum landsins

Viðburðurinn er gott dæmi um það fjölbreytta tónlistarstarf sem fram fer í íslensku kirkjulífi í dag. Tónlist í kirkjum landsins spannar í dag allt frá hefðbundnum sálmasöng og klassískri kirkjutónlist yfir í gospel, popp og samtímatónlist. Námskeiðið og tónleikarnir í Lindakirkju sýna vel þann mikla áhuga sem er á því að efla söng, samhljóm og framkomu í söfnuðum landsins og að gott rými er fyrir nýja strauma og stefnur innan kirkjutónlistarinna

Margrét Unnur Kjartansdóttir

30. apríl 2026 15:26