
Nú er komið að fyrstu fermingarhelgi vorsins í Lindakirkju og verða tvær fermingarathafnir á laugardaginn og ein á sunnudaginn.
En að öðru leyti verður helgin með venjubundnu sniði:
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Sunnudagaskólakennarar leiða stundina.
Guðsþjónusta kl.20:00. Barna- og Unglingagospelkór Lindakirkju syngur. Fjöldi einsöngvara, frumsamdar bænir og ritningarlestrar í höndum kórfélaga. Stjórnendur kóranna eru Áslaug Helga og Hjördís Anna. Óskar Einarsson situr við flygilinn að vanda. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar
Guðsþjónustunni verður streymt á facebook síðu og heimasíðu Lindakirkju
Öll hjartanlega velkomin
Margrét Unnur Kjartansdóttir
11. mars 2026 21:33
