Sunnudagaskólinn verður að venju klukkan ellefu á sunnudagsmorguninn.
Um kvöldið kl. 20 er guðsþjónusta sem er sérstaklega helguð fermingarbörnunum vorsins
og fjölskyldum þeirra. Stúlkur úr fermingarhópnum syngja,
Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar,
Einar Aron töframaður kemur í heimsókn.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson leiðir guðsþjónustuna.
Guðsþjónustunni verður streymt á facebook síðu og heimasíðu Lindakirkju
Öll hjartanlega velkomin

Margrét Unnur Kjartansdóttir

4. mars 2026 15:23