Sú kirkja sem stendur í uppsölum Kópavogs mun um aldir bera með sér dugnað og festu þess manns sem við kveðjum í dag.

Arnór L. Pálsson var strax við stofnun Lindasóknar kosinn formaður sóknarnefndar og gegndi þeirri formennsku í heil 20 ár. Við þau tímamót þ.e. eftir 20 ára þrotlaust starf fyrir sóknina og kirkjuna þá gafst sóknarnefnd Lindasóknar færi á að heiðra hann og þakka það mikla starf sem hann hafði gefið af miklu örlæti til sóknarinnar.

Lindakirkja er sannarlega vitnisburður um Arnór því hann var meginstólpi í allri framkvæmd eftir að sóknin hafði verið stofnuð og þar til kirkja var risin.  Arnóri var það mikið keppikefli að eiga helst fyrir kirkjunni áður en hún yrði byggð þannig að róðurinn fyrir allt starf kirkjunnar yrði ekki þungur. Þessi hugsun er enn heiðruð af okkur sem námu visku Arnórs og þó húsið sé enn á byggingarstigi þá er hægt og rólega verið að klára það sem þarf að klára – en bara þegar við eigum fyrir því.

Sá sem hér heldur á penna fékk snemma það verkefni að eiga einn laugardagsmorgun á hverju ári með Arnóri þar sem fjárhagsáætlun fyrir árið var gerð. Arnór mælti fyrir um hvaða tölur ættu að vera á hverjum lið: „æ, settu bara 50 þús á þennan lið, eða nei, hafðu það 40.“

Um tíma vék ég úr sóknarnefnd Lindasóknar en þá kom Arnór til mín og sagði: „þú veist að þó þú hættir í sóknarnefndinni þá ertu skuldbundinn til að taka að þér fundarstjórn á aðalsafnaðarfundum.“ Það stóð heima, alltaf kom símtal frá þessum mæta manni og hvarflaði ekki að undirrituðum að bregðast honum.

Arnór var duglegur við að líta við í kirkjunni  og þá einkum eftir að ævistarfið hafði vikið fyrir ævikvöldinu. Hann kom stundum daglega í kirkjuna og gladdi þá starfsmenn þ.á.m. prestana þrjá sem hann, vel að merkja, sá um að ráða á sínum tíma.

Á aðalsafnaðarfundum var hann stuttorður en gagnorður, nefndi sí hækkandi tölu yfir sóknarbörn Lindasóknar og vandaði sig svo við að þakka þeim sem að starfinu höfðu komið. Sóknarnefnd Lindasóknar vottar eiginkonu Arnórs, og fjölskyldunni allri, samúð um leið þá ítrekum við hversu þakklát við erum að hafa fengið að starfa með þessum mæta og góða manni, Arnóri L. Pálssyni. Guð blessi minningu þessa brautryðjanda í starfi Lindasóknar.

F.h. sóknarnefndar Lindasóknar og starfsfólks Lindakirkju, Hafþór Freyr Sigmundsson

Margrét Unnur Kjartansdóttir

13. febrúar 2026 13:32