Sunnudagaskólinn í umsjón Regínu og Svenna hefst að venju klukkan ellefu. Vonandi sjáum við ykkur sem flest því það verður sko mikið fjör.

Um kvöldið klukkan átta verður guðsþjónusta sem er sérstaklega tileinkuð fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra. Fermingarbörn lesa ritningarlestra, Kór Lindakirkju syngur ásamt Diljá Pétursdóttur. Stjórnandi er Óskar Einarsson. Sr. Guðmundur Karl leiðir stundina.