SKÍRDAGUR kl. 20
Í kapellu Lindakirkju. Við komum saman til heilagrar kvöldmáltíðar kring um altari trésmiðsins, syngjum og njótum fallegrar tónlistar, sr. Guðmundur Karl flytur hugvekju: LÍFIÐ – GJÖF EÐA GJALD?
Spjall og gott samfélag að athöfn lokinni.

FÖSTUDAGURINN LANGI kl. 20
Passía og Pétur Ben. Tónlistarmaðurinn Pétur Ben flytur eigin tónlist og annarra.
Lesnir verða valdir kafla úr píslarsögu Krists í Jóhannesarguðspjalli.
sr. Guðmundur Karl flytur hugvekju: LÍFIÐ – FÓRN?
Spjall og gott samfélag að athöfn lokinni.

PÁSKADAGUR KL. 9 OG KL. 11
9:00 – KRISTUR ER UPPRISINN – Páskaguðsþjónusta. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar.
Sr. Guðni Már Harðarson þjónar. Að guðsþjónustu lokinni er boðið til morgunverðar og er öllum frjálst að leggja eitthvað til á morgunverðarborðið.
11:00 – Sunnudagaskóli. Regína Ósk og Svenni Þór annast hátíðlegan sunnudagaskóla ásamt sr. Guðna Má. Páskaeggjaleit fyrir börnin.