Tólf spora starfið í Lindakirkju byrjar 25.janúar 2023, kl. 18.00
Farin verður 16 vikna ferð eða svokölluð hraðferð þar sem einni yfirferð um sporin lýkur í vor. Fyrst eru tveir kynningarfundir þar sem fólk hefur tækifæri til að kynna sér prógrammið. Það eru allir velkomnir á þessa opnu fundi og ekki þörf á að skrá sig fyrirfram.
Fyrsti opni fundurinn verður miðvikudaginn 25. janúar kl. 18:00. Næsti opni fundurinn verður 1. febrúar  en á þriðja fundi 8. febrúar verður hópunum lokað og reiknað með að þau sem mæta þá ætli að vera með þessar vikur.
(Best er að mæta á báða opnu fundina)

Fundartími: Miðvikudagar kl. 18:00-20:00.