Á þessu hausti eru liðin 20 ár síðan safnaðarstarf í Lindasókn hóf göngu sína. Í tilefni afmælsins verður bryddað upp á ýmsu vikuna 17. – 23. október. Atburðirnir falla allir undir slagorðið Lindakirkja á afmæli – Lyftum okkur upp!, því þetta haust verður mikið kapp á það lagt að safna fyrir lyftu í turn Lindakirkju. Löng eru orðið tímabært að sóknarbörn og önnur börn, ung og gömul, geti átt kost á að njóta þess stórkostlga útsýnis sem fyrir augu ber úr turninum og meðfylgjandi panorama mynd ber með sér. Síðastliðið vor var kjallari kirkjunnar tekinn í gegn og hafa þær breytingar nú þegar reynst mikil lyftistöng fyrir barna- og unglingastarfið. Lyfta í turnhús kirkjunnar myndi tryggja aðgengi allra að þeirri frábæru aðstöðu sem þar er.

Lyftusjóður

537-14-7079
kt: 550302-2920

Tónleikar 20. október kl. 12

Meðal afmælisviðburða má nefna að fimmtudaginn 20. október verða haldnir fjáröflunartónleikar í hádeginu. Þar leggur glæsilegur hópur söngvara Lindakirkju lið: Gissur Páll Gissurarson, Páll Rósinkranz, Regína Ósk Óskarsdóttir, Sigríður Guðnadótt or Þór Breiðfjörð að ógleymdri Diljá Pétursdóttur, sem syngur með kór Lindakirkju. Óskar Einarsson, tónlistarstjóri leikur á píanó með öllum söngvurunum og hefur umsjón með dagskrá tónleikanna.

Sunnudagurinn 23. október hefst með afmæliskirkjubralli í sunnudagaskólanum og að sjálfsögðu verður boðið upp á afmælisköku í tilefni dagsins. Sama kvöld verður boðið upp á viðlíka trakteringar að lokinni guðsþjónustu kl. 20. Fleiri viðburðir verða þessa viku verða auglýstir betur þegar nær dregur, má nefna að hlauparar munu safna áheitum til að afla söfnuninni Lyftum okkur upp! lið.

Einnig má nefna að í tilefni afmælisins eru öll safnaðarblöð Lindakirkju frá upphafi nú aðgengileg á heimasíðu safnaðarins.