Lofgjörðar- og fyrirbænastundir verða haldnar á miðvikudagskvöldum kl. 20 í vetur. Um er að ræða hugljúfar og blessunarríkar stundir þar sem sungin er lofgjörð og flutt hugvekja og/eða vitnisburðir, en í lok stundanna er boðið upp á fyrirbæn. Einstakur hópur sjálfboðaliða hefur annast þetta dýrmæta starf á undanförnum árum í samvinnu við presta Lindakirkju. Nú hefur okkur borist góður liðsauki í Steinari Kristinssyni, trompetleikara sem mun leiða tónlistarhópinn í vetur. Fyrsta lofgjörðarstund vetrarins verður miðvikudaginn 16. september kl. 20 og eftir það í hverri viku á sama tíma.