JÓLA BUBLÉ 2019
30. nóvember 2019 kl. 20:00
| 4.990 kr.Flestir þekkja Michael Bublé, kanadíska söngvarann geðþekka. Jólaplata hans, Christmas, er í uppáhaldi hjá mörgum enda hefur hún selst í milljónum eintaka um allan heim.
Aðalsöngvarar á Jóla Bublé
Arnar Dór söng sig inn í hjörtu landsmanna í Voice þáttunum og hefur síðan staðið fyrir ýmsum vinsælum söngviðburðum, meðal annars Jóla Bublé 2018.
Gói (Guðjón Davíð Karlsson) er Íslendingum að góðu kunnur, en hér sýnir hann á sér lítt þekkta hlið. Auk þess að vera fjölhæfur leikari og uppistandari er Gói frábær söngvari.
Ari Ólafs flutti framlag Íslands í Evrópusöngvakeppninni árið 2018. Hann vakti mikla athygli á lokakvöldi Eurovision hér heima á þessu ári þegar hann söng í sjónvarpsútsendingunni með þeim Bergþóri Pálssyni og Gissuri Páli Gissurarsyni. Ari hefur undanfarið lagt stund á söngnám í London og hefur aldrei verið betri.
Á JÓLA BUBLÉ tónleikunum verða flutt falleg jólalög í útsetningum og anda Michael Bublé. Þar ríkir gleði og léttleiki og uppistand að hætti Góa, Ara og Arnars Dórs.
Hljómsveitina skipa
- Óskar Einarsson – hljómborð
- Páll E. Pálsson – bassi
- Rafn Hlíðkvist Björgvinsson – píanó
- Pétur Erlendsson – gítar
- Jón Borgar Loftsson – trommur
- Kjartan Hákonarson – trompet
- Óskar Guðjónsson – saxófónn
- Samúel Jón Samúelsson – básúna.
- Alma Rut – söngur og raddir
- Ragna Björg Ársælsdóttir – söngur og raddir
- Rakel Pálsdóttir – söngur og raddir
Miðaverð
4.990 kr.
Af hverjum seldum miða renna 1.000 kr. til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Dagsetningar
- Laugardagur 30. nóvember kl. 17:00
- Laugardagur 30. nóvember kl. 20:00
- Miðvikudagur 04. desember kl. 20:00