Alfa-námskeið fyrir ungt fólk 16 til 20 ára að hefjast í Lindakirkju!
Vegna mikillar eftirspurnar erum við í Lindakirkju að fara af stað með Alfa-námskeið fyrir ungmenni í samstarfi við KFUM og KFUK og KSS. Námskeiðið verður frá 18.00-20.00 á miðvikudagskvöldum.
Markmið námskeiðsins er að gefa ungu fólki tækifæri til að velta fyrir sér lífinu, tilgangi og trú. Lagt er upp með að skapa rými fyrir spurningar og þar sem öll sjónarhorn eru velkomin. Námskeiðið hefst alltaf með kvöldmat og svo er horft á myndband þar sem meginatriði kristinnar trúar eru kynnt og ýmsum spurningum velt upp.
Námskeiðið byggir á nýframleiddu og spennandi efni frá Alpha international en 32 milljónir manna um allan heim hafa sótt Alfa námskeiðin.
Námskeiðið verður á miðvikudagskvöldum og er hugsað fyrir ungt fólk 16-20 ára eða þau sem eru fædd 2006-2010
Sérstakt kynningarkvöld er 4. febrúar kl. 18:00 en námskeiðið sjálft er svo í 8 miðvikudagskvöld eftir það. Einnig er farið í Ölver sumarbúðir í eina helgi.
Umsjón með námskeiðinu hafa sr. Guðni Már Harðarson og Þorgerður Júlía Halldórsdóttir (Alfa-nafnið hefur ruglað suma sem tengja það við hugtakið Alfa-male en því fer mjög fjarri þar sem námskeiðið dregur nafn sitt af kemur frá orðum Jesú sem sagðist vera Alfa og Omega (upphafið og endirinn)
Kostnaður við námskeiðið er niðurgreiddur af Lindakirkju og er einungis 500 krónur fyrir kvöldmatinn hvert skipti.
Ekkert kostar á kynningarkvöldið og enginn skuldbinding felst í því að taka þátt í því.
Þau sem hafa áhuga á að vera með geta mætt á miðvikudagskvöldið 4. febrúar kl. 18:00 og sent póst á gudni@lindakirkja.is
í hlekk í athugasemdum má finna stuttar kynningar sem gefa innsýn inn í Alpha youth efnið

Margrét Unnur Kjartansdóttir

2. febrúar 2026 14:15